US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Store Supervisor / Vöruhúsastjóri

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Vöruhúsastjóri / Stores Supervisor

Alcoa Fjarðaál – Reyðarfjörður | Vöruhús / Warehouse
 

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í hlutverk Vöruhúsatjóra.

Almennt um starfið

Hlutverkið felur í sér ábyrgð á daglegum rekstri vöruhúss Alcoa Fjarðaáls og starfsmannahaldi.

Vöruhúsastjóri skal tryggja að vöruhúsarekstur, ferlar, skráningar og dagleg framkvæmd séu í samræmi við verklag, innri kröfur fyrirtækisins og viðeigandi öryggis-, gæða- og rekstrarkröfur.

Starfið krefst góðrar yfirsýnar, leiðtogahæfni og hæfni til að vinna þvert á deildir, meðal annars með viðhaldi, framleiðslu, innkaupum, fjármálum, UHÖ, birgjum, verktökum og öðrum samstarfsaðilum.

Af hverju Alcoa Fjarðaál?



* Tækifæri til að vinna í einu tæknilega fullkomnasta álveri í heiminum


* Góð laun og fríðindi


* Mikil tækifæri til að þróa hæfileika þína og vaxa í starfi


* Vingjarnlegt og stuðningsríkt vinnuumhverfi


* Fríar rútuferðir til og frá vinnu


* Frábært mötuneyti


* Velferðarþjónusta

Verksvið, ábyrgð og meginverkefni starfsins

Rekstrarábyrgð á vöruhúsi



* Leiða og stýra daglegum rekstri vöruhúss með áherslu á öryggi, heilsu, umhverfi, gæði og skilvirkni.


* Bera ábyrgð á móttöku, geymslu, tiltekt, undirbúningi, afhendingu, skilum á vörum.


* Tryggja að vöruhúsastarfsemi styðji þarfir viðhalds og framleiðslu.


* Stýra skipulagi, rýmisnýtingu, aðgengi, öryggi og umhirðu vöruhúsasvæða.


* Tryggja að réttar vörur séu  aðgengilegar og tiltækar þegar rekstur og viðhald þurfa á þeim að halda.

Birgðir, gögn og rekjanleiki



* Bera ábyrgð á birgðanákvæmni og vörutalningu.


* Tryggja rétta staðsetningu, merkingu, skráningu og rekjanleika vara í vöruhúsa- og birgðakerfum.


* Fylgja eftir frávikum, leiðréttingum, töpuðum vörum og öðrum málum sem hafa áhrif á birgðir eða móttöku.


* Yfirferð á úreldum og umfram birgðum samkvæmt samþykktu verklagi.


* Tryggja að gögn og skráningar séu áreiðanlegar.

Starfsmannahald og liðsheild



* Hafa umsjón með verkefnaúthlutun, forgangsröðun og daglegri nýtingu mannafla.


* Tryggja að starfsfólk hafi viðeigandi þjálfun, hæfni og skilning á áhættu, ábyrgð og verklagi.


* Styðja við starfsfólk, starfsþróun, ferli og jákvæða liðsheild.


* Tryggja að mönnun og vinnuskipulag séu í samræmi við verkefni og þjónustuþörf.


* Tryggja öryggi starfsfólks, verktaka, birgja og annarra sem koma að vöruhúsastarfsemi.

Mælikvarðar, úttektir og umb...




Share Job