US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Áreiðanleikasérfræðingur / Reliability Engineer

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og lausnamiðuðum einstaklingi í hlutverk áreiðanleikasérfræðings.

Starfið felst í að þróa viðhaldsáætlanir og meta ávinning þeirra með áreiðanleikagreiningum, umsjón á varahlutum og rótagreiningar í samræmi við stefnu Fjarðaáls.

Áreiðanleikasérfræðingar vinna náið með skipuleggjendum, viðhaldsleiðtogum, iðnaðarmönnum og tækniteymum framleiðslusvæða.

Almennt um starfið 

Markmið og tilgangur starfs 

Stuðla að áreiðanlegum og hagkvæmum rekstri búnaðar með gerð fyrirbyggjandi viðhaldsáætlana og meta ávinning þeirra með áreiðanleikagreiningum.  

 

Verksvið eða meginverkefni starfsins 

Meginverkefnin eru meðal annars:  


* Halda utan um búnaðarskrá Alcoa Fjarðaáls. 



* Gerð viðhaldsáætlana í samræmi við áreiðanleikastefnu Fjarðaáls og mikilvægi búnaðar.  



* Skilgreina varahluti í vörulista. 



* Gerð verklýsinga fyrir fyrirbyggjandi viðhald. 



* Framkvæma áreiðanleikagreiningar. 



* Framkvæma rótargreiningar á vandamálum. 

 

Ábyrgð í starfi 

Vinna eftir áreiðanleikastefnu Fjarðaáls til að stuðla að áreiðanlegum og hagkvæmum rekstri Fjarðaáls.  

Grunnkröfur 

Menntun og/eða réttindi sem krafist er 

Tækni/verkfræðimenntun eða önnur hagnýt menntun s.s.

véliðnfræði. 

 

Reynsla sem krafist er 

Minnst 5 ára starfsreynsla og reynsla af viðhaldsmálum. Reynsla af störfum framleiðslufyrirtækja kostur.  

 

Hæfni sem krafist er 


* Góð enskukunnátta.  



* Geta unnið í teymi.  



* Vilji til að læra. 



* Sýna frumkvæði. 



* Góð almenn tölvufærni og geta til að tileinka sér notkun tölvukerfa.  

 

Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu 

Viðhalds- og áreiðanleikasérfræðingar eiga í nánum samskiptum við planara, viðhaldsleiðtoga, iðnaðarmenn, rekstrarstjóra og tækniteymi framleiðslusvæða í sinni vinnu.  

Samskipti við birgja, þjónustuaðila og tækniþjónustu Alcoa (Center of Exellence). 

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar.

Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Finnsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í...




Share Job