US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Öryggissérfræðingur / Safety Specialist

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Við leitum að öflugum og reyndum einstaklingi í starf öryggissérfræðings í umhverfis-, heilbrigðis- og öryggisteymi.

Öryggissérfræðingur stuðlar að góðri öryggis- og heilbrigðis-menningu með leiðsögn, ráðgjöf, þjálfun, fræðslu, og eftirfylgni.

1.

Almennt um starfið

Markmið og tilgangur starfs

Styðja kjarnafeli í innleiðingu öryggis- og heilsumenningar ásamt því að veita stuðning, ráðgjöf og leiðsögn er kemur að öryggismálum

Verksvið eða meginverkefni starfsins

· Þekkja öryggiskröfur fyrirtækisins til hlítar

· Stuðla að því að öryggisstjórnkerfi fyrirtækisins (ISO 45001) sé virkt og að fyrirtækið starfi samkvæmt lögum og reglugerðum er varða öryggismál.

· Leiðbeina / þjálfa starfsmenn í öryggismálum.

· Ber ábyrgð á uppfærslu og viðhaldi öryggismælikvarða og virk þátttaka á daglegum DMS1 og DMS2 fundum

· Þátttaka í starfi og stefnumótun umhverfis-, heilsu- og öryggisteymis.

· Vera fyrirmynd í notkun á öryggisbúnaði og í fylgni öryggisreglna

· Tryggja góð samskipti við öryggissérfræðinga hjá móðurfélaginu og miðlar upplýsingum er varða öryggismál frá móðurfélaginu innan Fjarðaáls.

· Taka þátt í rótargreiningum atvika eftir því sem við á

· Ber ábyrgð á neyðarviðbrögðum á svæði Fjarðaáls ásamt samskiptum við slökkvilið og verktaka sem sér um öryggisgæslu.

· Ber ábyrgð á uppfærslu neyðarviðbragðsáætlana og að æfingar í neyðarviðbrögðum séu framkvæmdar á öllum svæðum.

· Umsjón með MES atvikaskráningakerfi.

Rýni UHÖ atvika og úttekta á öllum starfssvæðum.

· Ýmis verkefni sem til falla og snerta öryggi starfsmanna og verktaka

Ábyrgð í starfi

· Hefur yfirsýn yfir öryggiskröfur Alcoa og hvort Alcoa Fjarðaál sé að standast þær kröfur

· Að öryggiskröfum Alcoa sé framfylgt ásamt íslenskum og evrópskum lögum og reglugerðum er varða öryggismál

· Yfirsýn og þátttaka í rótargreiningum atvika og slysa sé þess óskað

2.

Grunnkröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Reynsla sem krafist er

Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á sviði öryggismála.

Hæfni sem krafist er

Sterk öryggisvitund, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og mannleg samskipti

Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu

Náin samskipti við framkvæmdastjóra og forstjóra Fjarðaáls.

Góð samskipti við alla starfsmenn fyrirtækisins og verktaka.

Ráðgefandi vegna þjálfunar starfsmanna og verktaka í öryggismálum.

Ytri tengsl eiga við um samskipti við verktaka sem sinna öryggisgæslu ...




Share Job