US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Vélstjóri á víravél í steypuskála / Maintenance Technician for the Rodding Mill in the Castho

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Almennt um starfið

Markmið og tilgangur starfs

Vélstjóri í steypuskála ber ábyrgð á daglegum rekstri, eftirliti og viðhaldi steypuvéla í steypuskála.

Starfið felur í sér að tryggja stöðugleika, gæði og öryggi í framleiðsluferlinu, auk þess að styðja við umbætur og áreiðanleikaferli.

Vélstjóri vinnur náið með framleiðsluteymi, viðhaldssérfræðingum og öðrum teymum til að hámarka nýtingu og draga úr óskipulögðum stoppum.

Verksvið eða meginverkefni starfsins


* Framkvæma stöðluð eftirlit samkvæmt gátlistum (GÁT-MÁL-ROD 203/204/205) og skrá niðurstöður.


* Sinna smáviðgerðum og neyðarviðgerðum til að tryggja gang vélanna.


* Skrá allar viðgerðir og athugasemdir í eAM kerfi.


* Taka þátt í umbótaverkefnum, vöktun og greiningu á vélbúnaði.


* Sitja á vikulegum framleiðslufundum og leggja fram tillögur að umbótum.


* Hafa yfirsýn yfir verk á viðhaldsdögum, samræma skipulag og tryggja að verk séu kláruð.


* Meta breytingar á plani í samvinnu við viðhaldsleiðtoga.


* Aðstoða við skipulag og framkvæmd viðsnúnings vélarinnar.


* Tryggja skýrar boðleiðir og hraðan viðbragðstíma í samskiptum við önnur teymi.

Ábyrgð í starfi


* Vinna samkvæmt samþykktum ferlum og verklagsreglum.


* Tryggja að öll verk sem snerta öryggi og heilsu séu framkvæmd, tilkynna frávik ef þau koma upp.


* Fylgja stöðlum Alcoa og Fjarðaáls.


* Tryggja skráningu allra viðgerða og eftirlits í eAM kerfi.


* Samræma og styðja við framkvæmd viðhaldsstoppa og viðsnúnings.


* Taka þátt í umbótastarfi og breytingastjórnun (VS1–VS4).


* Virkja hjálparkeðju og kalla inn viðhaldsvakt þegar þörf krefur.

Grunnkröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Iðnmenntun (vélfræði, vélvirkjun, rafvirkjun eða sambærilegt).

Reynsla sem krafist er

A.m.k.

5 ára starfsreynsla, helst í framleiðslu eða viðhaldi.

Hæfni sem krafist er


* Geta unnið í teymi og sýna frumkvæði.


* Góð samskiptahæfni og skipulagshæfni.


* Þekking á áreiðanleikaferlum og viðhaldskerfum (eAM).


* Góð almenn tölvufærni (Excel, Word, Outlook, PowerPoint).

Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu

·  Framleiðsluteymi og framleiðslusérfræðingar.

·  Viðhaldssérfræðingar og viðhaldsleiðtogar.

·  Tölvuteymi (IT) vegna kerfismála.

·  Standaverkstæði og gæðastýring.

·  Birgjar og þjónustuaðilar (t.d.

Brammer).

Annað

Annað sem krafist er

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt...




Share Job